Hagnaður TM af reglulegri starfsemi á árinu 2009 var 237 milljónir króna samanborið við 5.529 milljóna króna tap 2008 að því er fram kemur í uppgjöri félagsins. Hagnaður af vátryggingastarfsemi var 342 milljónir  fyrir skatta samanborið við 166 milljónir árið áður.

Í tilkynningu frá TM segir að afkoma eigna-, slysa- og frjálsra ökutækjatrygginga batni verulega milli ára. Afkoma lögboðinna ökutækjatrygginga sé óbreytt milli ára þrátt fyrir verulega fækkun árekstra. „Athygliverð þróun hefur átt sér stað í greininni þar sem líkamstjónum fjölgar á sama tíma og munatjónum fækkar verulega. Afkoma skipa- og ábyrgðartrygginga veldur vonbrigðum en mikil fjölgun varð á ábyrgðartjónum í kjölfar efnahagshrunsins. Þrátt fyrir nýjar áskoranir lækkar tjónshlutfall samstæðunnar úr 104% í 94%," segir í tilkynningu.

„Í ljósi efnahags- og samkeppnisaðstæðna var vöxtur og afkoma TM á árinu 2009 viðunandi. Iðgjaldatekjur aukast á sama tíma og tjónakostnaður lækkar. Hagræðingaraðgerðir á árinu 2009 skiluðu góðum árangri og lækkar rekstrarkostnaður félagsins umtalsvert. Fjárhagsstaða TM er sem fyrr traust en mikill viðsnúningur varð í fjárfestingastarfsemi félagsins. Styrkur TM felst í góðu sambandi við viðskiptavini og reksturinn framundan býður uppá fjölmörg tækifæri," er haft eftir Sigurði Viðarssyni, forstjóra TM, í tilkynningunni.

Rekstrarkostnaður TM fyrir árið 2009 var 2.192 milljónir króna. „Umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir á árinu skiluðu sér í lækkun rekstrarkostnaðar í krónum talið, annað árið í röð. Aðgerðirnar fólu m.a. í sér einföldun á stjórnskipulagi, fækkun stöðugilda, endurskoðun á samningum við birgja, hagræðingu í innkaupum og lækkun á markaðs- og sölukostnaði. Kostnaðarhlutfall samstæðunnar lækkar úr 23% í 20%."

Segja fjárhagsstöðu trausta

„Viðsnúningur var í afkomu af fjárfestingastarfsemi félagins sem nemur 4.989 m.kr. milli ára. Afkoma félagsins af fjárfestingastarfsemi skýrist að mestu af vaxtatekjum, kröfulækkun ríkistryggðra skuldabréfa og hækkun hlutabréfa. Hagnaður af aflagðri starfsemi nam 2.691 m.kr. Hann skýrist af gengishagnaði við sölu á norska vátryggingafélaginu Nemi, sem selt var á fyrsta fjórðungi ársins. Fjárhagsleg staða TM er sem fyrr sterk. Eignir á móti vátryggingaskuld (bótasjóður) eru traustar þar sem stór hluti eignasafns félagsins er í ríkistryggðum verðbréfum og innstæðum. Geta félagsins til að standa við skuldbindingar sínar er langt umfram það sem opinberir aðilar gera kröfur um," segir í tilkynningu frá TM.