Verslunarmannafélag Reykjavíkur auglýsir eftir áhugasömum mönnum til að sitja í málefnahópi um siðareglur VR og stjórnarsetu í fyrirtækjum og félögum.

Í frétt á heimasiðu VR kemur fram á félagsfundi VR í nóvember á síðasta ári voru lagðar fram tillögur sem lúta annars vegar að því að móta siðareglur fyrir VR og hins vegar að setu í stjórnum félaga og fyrirtækja sem VR hefur aðkomu að. Ákveðið hefur verið að setja á laggirnar málefnahóp til að vinna í þessum tillögum og auglýsir VR því eftir áhugasömum félagsmönnum til að taka þátt í þeirri vinnu. Gert er ráð fyrir að fyrsti fundur hópsins verði  haldinn kl. 19:30 þriðjudaginn 3. febrúar.