Stjórn VR hefur ákveðið að láta verða af stofnun leigufélags sem sagt er að verði ekki rekið í hagnaðarskyni, að því er segir á vef félagsins. Eins og Viðskiptablaðið hefur greint frá hefur Ragnar Þór Ingólfsson formaður félagsins viðrað hugmyndir um stofnun leigufélags, og hafði trúnaðarráð félagsins jafnframt hvatt til stofnunar félagsins.

Verður nánari útfærsla á framkvæmdum, úthluturnarreglum, leiguverði og þess háttar í höndum Húsnæðisnefndar VR, en í yfirlýsingu félagsins segir að öfugt við almenn leigufélög muni leigufélag VR snúast fyrst og fremst um það hvernig hægt sé að hafa leiguna sem lægsta en ekki sem mesta arðsemi.

„Áætluð uppsöfnuð þörf á nýjum íbúðum á íslenskum markaði eru 6.000 íbúðir og árleg þörf nýrra íbúða eru 2.200 íbúðir svo augljóst má vera að um neyðarástand er að ræða,“ segir í yfirlýsingunni, en Íbúðalánasjóður hefur talað um að þörfin sé allt að 17 þúsund íbúðir.

„Stjórn VR telur það félagslega skyldu sína að bregðast við með einhverjum hætti og leggja þannig eitthvað á vogarskálarnar í þeirri von að slíkt viðbragð verði opinberum aðilum, öðrum félögum, samtökum og sjóðum fyrirmynd og hvatning til að gera eitthvað viðlíka eða koma til samstarfs við VR um frekari verkefni.“

Hér má lesa frekari fréttir um málefni tengd nýjum formanni VR:

Hér má lesa skoðanapistla um nýjan formann VR: