Kjarasamningar VR og atvinnurekenda, sem undirritaðir voru í desember síðastliðnum, voru samþykktir í allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna sem lauk á hádegi á mánudaginn.

Samningurinn  var samþykktur með 55,26% atkvæða. Á kjörskrá voru 24.622 en atkvæði greiddu 3.353 eða 13,62%. Já sögðu 1.853 eða 55,26%, nei sögðu 1.422 eða 42,41% en 78 eða 2,33% tóku ekki afstöðu eða skiluðu auðu.

Kjarasamningur VR og Félags atvinnurekenda var samþykktur með 59,09% atkvæða. Á kjörskrá voru 930 en atkvæði greiddu 176 eða 18,92%. Já sögðu 104 eða 59,09%, nei sögðu 68 eða 38,64% en 4 eða 2,27% tóku ekki afstöðu eða skiluðu auðu.

Félagsmenn Drífanda, sem er eitt af aðildarfélögum Starfsgreinasambandsins, hafnaði samningum við Samtök atvinnulífsins með miklum meirihluta atkvæða. Á vef mbl.is kemur fram að um 96% félagsmanna hafi greitt atkvæði gegn samningnum. Þingiðn, félag iðnaðarmanna í Þingeyjarsýslum, hafnaði einnig samningnum.