VR samþykkti kröfugerð sína fyrir komandi kjaraviðræður á fundi trúnaðarráðs félagsins í gærkvöldi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Meðal þeirra krafa félagsins eru hækkun lágmarkslauna í 425.000 krónur á næstu þremur árum, styttri vinnuvika án launaskerðingar og stórátak í húsnæðismálum.

„Markmið með gerð kjarasamninga nú verði að rétta hlut þeirra lægst launuðu og auka ráðstöfunartekjur allra félagsmanna VR. Það sé því mikilvægt að bregðast við því misræmi sem sjá má í launaþróun þeirra hæst launuðu í þjóðfélaginu sem má meðal annars rekja til ákvörðunar kjararáðs árið 2016. VR telur mikilvægt að taka sérstakt tillit til stöðu þeirra sem hafa lægstu launin og leggur því til að samið verði um krónutöluhækkun," segir í tilkynningunni.

Í kröfugerðinni kemur fram að félagið krefjist þess að lágmarkslaun hækki í skrefum í 425.000 krónur næstu þrjú árin.

VR gerir kröfu um 42.000 króna hækkun á launum frá og með 1. janúar 2019, þannig að lágmarkslaun verði þá kr. 342.000. Öll laun hækki um 42.000.

VR gerir kröfu um 42.000 króna hækkun frá og með 1. janúar 2020 þannig að lágmarkslaun verði þá 384.000. Öll laun hækki um kr. 42.000.

VR gerir síðan kröfu um 41.000 króna hækkun frá og með 1. janúar 2021 þannig að lágmarkslaun verði 425.000. Öll laun hækki um kr. 41.000.

Þá gerir VR þá kröfu að vinnuvika félagsmanna verði stytt, án launaskerðingar í 35 stundir á viku bæði hjá skrifstofu- og verslunarfólki.

VR leggur til að stórátak verði gert í húsnæðismálum þjóðarinnar og að vegna þess verði stofnað óhagnaðardrifið húsnæðisfélag og verði fjármögnun þess tryggð í kjarasamningi.

VR gerir þá kröfu að stjórnvöld komi að gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, meðal annars með því að endurskoða persónuafslátt og tekjutengingar. Þá gera félagsmenn VR kröfu um skattleysi lægstu launa, lækkun vaxta og afnám verðtryggingar á neytendalán.