Fasteignasalan VT Fasteignir er ný fasteignasala sem hefur tekið til starfa að Bíldshöfða 14. Framkvæmdastjóri VT Fasteigna er Kristinn Tómasson en hann starfaði áður sem forstöðumaður Verðbréfa & og lífeyrisráðgjafar Landsbankans.

Haft er eftir Kristni í tilkynningu að fasteignasalan ætli að veita viðskiptavinum ráðgjöf í fasteignaviðskiptum og sérhæfi fyrirtækið sig í lánamálum fyrir fjármögnun fasteigna og endurfjármögnun.

„Stóra málið er að teygja sig ekki endilega að enda greiðslumatsins í hvert sinn sem fasteign er keypt. Æskilegra er að hafa aðeins borð fyrir báru því ætíð er viðbúið að fólk verði fyrir óvæntum útgjöldum sem sett geta strik í reikninginn,“ segir Kristinn.