Bandaríski apóteksrisinn Walgreens hyggst kaupa eina stærstu apótekskeðju Bretlands Alliance Boots sem rekur Boots apótekin.
Walgreens mun hafa samráð við fjárfesta til að fá samþykki fyrir tilboðinu sem nemur 9 milljörðum punda, eða sem nemur 1750 milljörðum íslenskra króna.
Walgreens keypti 45% hlut í fyrirtækinu árið 2012 og vill nú ljúka kaupum á 55% hlutanum sem var eftirstandandi. Eftir samrunann mun fyrirtækið bera heitið Walgreen Boots Alliance og munu höfuðstöðvar þess vera í Chicago. Höfuðstöðvar Boots munu vera áfram í Nottingham í Bretlandi.
Walgreens neitar því að samruninn sé til þess að forðast háu fyrirtækjaskattana í Bandaríkjunum.