Hlutabréfavísitölur lækkuðu í viðskiptum dagsins. Tilkynnt var um 50 punkta stýrivaxtalækkun í Bandaríkjunum í dag og nema stýrivextir nú 3%. Sérfræðingar á markaði áttu von á þessari stýrivaxtalækkun, samkvæmt erlendum fjölmiðlum.

MarketWatch hefur eftir sérfræðingi að hlutabréfamarkaðurinn fagni sjaldan fregnum sem hann eigi von á, allavega ekki til lengri tíma litið, því markaðurinn verðleggur inn framtíðarvæntingar.

Dow Jones Industrial Average lækkaði um 0,3%, NASDAQ um 0,4% og S&P lækkaði um 0,5%.