Hlutabréfamarkaðurinn á Wall Street verður opinn í dag, en fyrir helgi var óvíst hvort stunduð yrðu viðskipti vegna afleiðinga fellibylsins Irene. Einhver töf verður þó á viðskiptum með framvirka samninga fyrir opnun markaða.

Búist er við einhverri röskun og að fjöldi viðskipta verði minni en flesta aðra daga. Neðanjarðarlestakerfi New York borgar liggur niðri og samgöngur til borgarinnar einnig.