Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum eru í plús í fyrstu viðskiptum dagsins. Nasdaq hefur hækkað um 1,38%, Dow Jones (DJIA) um 1,05%  og S&P 500 hefur hækkað um 1,09%.

Þá hækkuðu evrópsk hlutabréf töluvert í morgun í fyrstu viðskiptum dagsins. Þau lækkuðu síðan aftur en nú hafa FTSE 100, DAX og Dow Jones (DJIA) hækkað aftur.