Litlar fréttir hafa verið af vandarmálum í Evrópu í dag. Uppgjör nokkurra bílaframleiðanda birtust í morgun. Þau sýna að ástandið í Evrópu er erfitt. Þrátt fyrir það var ágætur hagnaður hjá Daimler, meðan Ford og Peugeot töpuðu miklu.
Álagið á spænsk ríkisskuldabréf til 10 ára hefur lækkað talsvert í dag og stendur í 7,37% en fór hæst í 7,75%.
Hlutabréf hækkuðu lítillega í helstu kauphöllum í Evrópu í dag. Mest var hækkunin á Spáni og Ítalíu. MIB á Ítalíu endaði í 1,17% hækkun og IBEX í 0,82% hækkun. DAC og CAC hækkuðu um 0,25% og FTSE í London stóð í stað.
Á Wall Street hafa vísitölurnar þrjár, DJIA, Nasdaq og S&P sveflast talsvert. Dow Jones stendur í 0,5% hækkun, S&P stendur í stað en Nasdaq hefur lækkað lítillega, eða um 0,16%.
Apple hefur lækkað mikið eftir að félagið birti uppgjör sitt í gær sem var undir væntingum. Lækkunin í dag stendur í 4% en var mun meiri í framvirkum viðskiptum í gærkvöldi, eða 5,5%.