Warner Music Group er enn að íhuga hvort það eigi að leggja fram tilboð í breska hljómplötufyrirtækið EMI Group. Í frétt Dow Jones fréttastofunnar er haft eftir heimildarmanni sem vel þekkir til stöðu mála, að félagið muni væntanlega taka ákvörðun um framhaldið á næstu dögum. Hann neitaði jafnframt því sem komið hefur fram í fjölmiðlum undanfarna daga að hluthafar Warner væru mótfallnir að lagt yrði fram tilboð í EMI.