Hlutabréf í Swiss Re tóku snarpan kipp upp á við, að sögn greiningardeildar Kaupþings, eftir að fjármálaþjónustufyrirtækið Berkshire Hathaway, sem Warren Buffet fer fyrir, festi kaup á 3% hlut í félaginu í viðamiklum viðskiptum þar sem Berkshire mun á næsta árum eignast fimmtungshlut í fasteigna- og skaðatryggingastarfsemi Swiss Re.

Jafnframt ætlar svissneska tryggingafélagið að kaupa eigin bréf fyrir rúma 100 milljarða króna, að sögn greiningardeildarinnar.