Fjárfestirinn og auðjöfurinn Warren Buffett hefur verið greindur með blöðruhálskrabbamein á byrjunarstigi. Í frétt Foxbusiness.com segir að hann muni halda áfram stöðu sinni hjá fjárfestingarfyrirtæki sínu, Berkshire Hathaway, en hann gegnir þar stöðu forstjóra og stjórnarformanns. Ástand hans er sagt vera „langt frá því að vera lífshættulegt“.