Warren Buffett hefur skráð sig á Facebook. Tæpur klukkutími er síðan hann skráði sig og hafa tæplega 50 þúsund manns skráð sig sem "fylgjendur" hans.

Buffett skráði sig í viðtali við Fortune tímaritið. Hann hefur aðeins tístað einu sinni eins og sjá má á myndinni hér að neðan.

Buffett er frægur fyrir að kunna lítið á nútíma tækni. Hann er ekki með tölvu á skrifstofu sinni og segist ekki kunna að athuga símsvarann sinn.

Það kann hins vegar Bill Gates vinur hans, sem þegar er orðinn einn af fylgjendum hans.

Warren Buffett byrjaður að tísta.
Warren Buffett byrjaður að tísta.