Nýsköpunarfyrirtækið Wasabi Iceland hefur klárað um fimmtíu miljóna króna fjármögnun með einkafjárfestum til þess að koma af stað fyrstu wasabi-ræktuninni á Íslandi. Fyrirtækið var stofnað árið 2015 af þeim Johan Sindra Hansen og Ragnari Atla Tómassyni. Áður hafði Arion banki fjárfest í fyrirtækinu í gegnum þátttöku þess í Startup Reykjavík.

Fyrirtækið ætlar að rækta wasabi plöntur bæði fyrir heimamarkað og til útflutnings, en plantan er fágæt og afar verðmætt hráefni í matargerð. Fyrirtækið var eitt af tíu nýsköpunarfyrirtækjum sem var valið inn í viðskiptahraðalinn Startup Reykjavík á vegum Icelandic Startups og Arion banka sumarið 2015. Gert er ráð fyrir fyrstu uppskeru árið 2017 og mun fyrsta íslenska wasabi-ið verða á boð­ stólum á Fiskmarkaðnum og Grillmarkaðnum, en samningur þess efnis var undirritaður á dögunum.