Gengi bréfa Weight Watchers International hefur hækkað um heil 18% í dag eftir að Oprah Winfrey, talskona fyrirtækisins, birti myndband af sér á Twitter þar sem hún segist hafa misst 13 kíló. Bloomberg segir frá þessu.

Hlutabréfaverð flöktir hratt á markaðnum, en við skrif fréttarinnar hreyfðist hækkunin ört. Mörkuðum hefur ekki enn verið lokað vestanhafs, en við lok markaða verður lokahækkun dagsins ljós. Hér má sjá gengi bréfa Weight Watchers þróast í rauntíma.

Þetta hefur gerst nokkrum sinnum áður. Hlutabréfaverð skaust upp þegar Oprah tilkynnti um að hún væri ný talskona fyrirtækisins, og svo aftur þegar hún sagðist hafa misst 7 kíló í spjallþætti Ellen DeGeneres.