Fjárfestingarsjóðurinn Wellington Management Group LLP hefur keypt í Century Aluminum Company, móðurfélagi Norðuráls, fyrir 826 þúsund dollara.

Félagið keypti 65.110 hluti á fyrsta ársfjórðungi. Bandaríska sjóðstýringarfyrirtækið hefur á undanförnum misserum keypt eignarhluti í skráðum íslenskum félögum.

Markaðsverðmæti (e. market cap) Century Aluminum er 1,6 milljarðar dollara. Century Aluminum á og rekur þrjú álver í Bandaríkjunum ásamt því á félagið Norðurál hér á Íslandi. Útistandandi hlutir Century Aluminium eru 87,26 milljónir.