Aðstandendur ferðatímaritsins What´s On, sem hefur verið gefið út mánaðarlega síðastliðin 30 ár, hefur opnað upplýsinga og bókunarmiðstöð á Laugavegi 4.

Það er fyrirtækið MD Reykjavík, sem hefur gefið út What´s On síðan síðla árs 2012. Í fyrra keypti fyrirtækið svo útgáfu Reykjavík City Guide. Það á sömuleiðis MyDestination Reykjavík sem er í bílum Kynnisferða og Akureyri Guide í samvinnu við Akureyrastofu. Það rekur sömuleiðis vefsíðurnar www.whatson.is og www.mydestination.com .

Forsíða What's On.
Forsíða What's On.