„Straumur hefur ávallt unnið samkvæmt gjaldeyrisreglum Seðlabanka Íslands af fullum heilindum. Við höfum engu að leyna,“ segir William Fall, forstjóri Straums í tilkynningu frá félaginu vegna umræðu um gjaldeyrisviðskipti Straums.

Í tilkynningunni kemur fram að það hafi verið látið að því liggja að bankinn, þar með talin útibú hans erlendis, ástundi slík viðskipti, ýmist beint eða í gegnum útibúin erlendis, í andstöðu við reglur Seðlabanka Íslands um gjaldeyrismál og vinni gegn því að skilaskyldur gjaldeyrir berist til landsins. Bankinn hafi með þessu komið í veg fyrir eðlilega styrkingu krónunnar.

„Þetta er alrangt,“ segir í tilkynningunni.

„Straumur hefur mjög lagt sig fram við að fylgja gjaldeyrisreglum Seðlabanka Íslands sem tóku fyrst gildi í nóvember 2008.“

Þá kemur fram að bankinn hafi meðal annars haft náið samráð við Seðlabankann um túlkun reglnanna og framkvæmd þeirra. Við bætist síðan að gjaldeyrisviðskipti Straums lúta nákvæmu eftirliti Seðlabankans sem fær reglulega skýrslur um öll þessi viðskipti. Engar upplýsingar séu þar undanskildar.

Í tilkynningunni kemur fram að frá því að reglur Seðlabanka Íslands um gjaldeyrismál tóku gildi hefur Straumur keypt erlendan gjaldeyri fyrir fjárhæð sem samsvarar um það bil 4,5 milljörðum króna.

Á sama tímabili hefur bankinn á grundvelli reglna Seðlabankans selt gjaldeyri fyrir fjárhæð sem samsvarar um það bil 2,6 milljörðum króna.

„Af þessu má ráða að gjaldeyrisvelta Straums er mjög óveruleg þegar hún er borin saman við heildar vöruútflutning þjóðarbúsins, en sem dæmi má nefna að samkvæmt opinberum tölum námu þær um það bil 97,2 milljörðum króna í nóvember og desember síðasta árs,“ segir í tilkynningunni.

„Ásakanir um að Straumur standi því í vegi að krónan styrkist fá því ekki staðist.“

Þá kemur fram að Straumur hefur í dag sent Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitinu erindi og farið þess á leit að gjaldeyrisviðskipti bankans verði tekin til sérstakrar skoðunar í ljósi þeirrar umræðu sem skapast hefur og áður er nefnd.

„Er það von Straums að með því fáist staðreynt að framkvæmd bankans í þessum efnum sé fyllilega í samræmi við lög og reglur,“ segir í tilkynningunni.