Willum Þór Þórsson
Willum Þór Þórsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Willum Þór Þórsson, framhalds- og háskólakennari, gefur kost á sér í 1. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í suðvesturkjördæmi vegna alþingiskosninga á næsta ári. Helstu áherslumál Willums eru þau sem snerta fjölskylduna og skuldavanda heimilanna, atvinnumál, mennta- og íþróttamál.

Fram kemur í tilkynningu að Willum Þór er menntaður rekstarhagfræðingur auk þess að vera með kennsluréttindi frá HÍ. Hann hefur starfað við kennslu í MK og HR síðustu ár ásamt því að vera þjálfari í knattspyrnu. Hann var á lista Framsóknarflokksins við bæjarstjórnarkosningar í Kópavogi auk þess sem hann sat um tíma í stjórn Sparsjóðs Kópavogs.