Wise hefur gert langtímaleigusamning við fasteignafélagið Reginn um leigu á húsnæði fyrir starfsemi sína í Reykjavík og á Akureyri. Starfsemi Wise í Reykjavík hefur nú þegar verið flutt úr Borgartúni 26 í húsnæði í eigu Regins í Ofanleiti 2, en það hýsti áður Háskólann í Reykjavík.

Wise verður á efstu hæð hússins en verkfræðistofan Verkís er einnig með starfsemi sína í húsinu. Á næstu vikum mun starfsemi Wise á norðurlandi einnig flytja starfsemi sína í húsnæði Regins, við Skipagötu 9 á Akureyri.

Stefna á stærsta árið til þessa

Wise stefnir á að árið 2021 verði það stærsta í 26 ára rekstrarsögu fyrirtækisins. Vöru- og þjónustuframboð fyrirtækisins hefur aukist með sameiningu við Centara og Clarito sem og með samstarfi við LS Retail og fleiri birgja.

Í tilkynningu fyrirtækisins segja þeir framtíðina vera bjarta og að það horfi fram á mikil vaxtartækifæri í tækniþróun og sérstaklega í þeirri stökkbreytingu sem er hafin í stafrænum lausnum og nýtingu þeirra.

Wise er jafnframt sagt vera einn stærsti söluaðili Microsoft Dynamics 365 lausna á Íslandi og vera í fararbroddi í upplýsingatækni með áherslu á bókhald, ráðgjöf, hugbúnaðargerð og innleiðingar ásamt öflugri og persónulegri þjónustu.