Ungverska flugfélagið Wizz Air mun hefja flug á milli Ríga í Lettlandi og Keflavíkur í sumar. Flugfélagið kemur til með að fljúga tvisvar í viku frá alþjóðaflugvellinum í Ríga frá og með 25. júní næstkomandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá alþjóðaflugvellinum í Ríga.

Flugfélagið ungverska kemur því til með að fljúga beint til Búdapest, Vilníus, Gdansk, Prag og Ríga frá Keflavíkurflugvelli í sumar.