Flugfélagið Wizz Air hefur ákveðið að hefja flug til Íslands frá Gdansk í Póllandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.

Ferðir hefjast í júní og flogið verður tvisvar í viku á mánudögum of föstudögum. Wizz Air er stærsta lággjaldaflugvélag í Mið- og Austur-Evrópu og er Keflavíkurflugvöllur 111. áfangastaður félagsins.

„Flugleiðum frá Keflavíkurflugvelli fjölgar sífellt og fagnar Isavia þessum tímamótum og býður Wizz Air velkomið ört stækkandi í hóp viðskiptavina,“ segir í tilkynningu frá Isavia.