Ungverska lággjaldaflugfélagið Wizz air hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að það hefji nú beint flug á milli Prag í Tékklandi og Keflavíkurflugvallar. Jómfrúarferðin verður flogin þann 31. maí næstkomandi. Flogið verður tvisvar sinnum á viku, á miðvikudögum og á sunnudögum.

Flugið kemur til með að kosta 49,99 evrur eða því sem samsvarar tæplega 6 þúsund íslenskum krónum, miðað við gengi dagsins í dag. Haft er eftir Sorina Ratz, samskiptastjóra Wizz air, í fréttatilkynningu sem að flugfélagið sendi frá sér að þau væru hæstánægð að geta tilkynnt um þetta spennandi tækifæri fyrir flugfarþega frá Prag.

Wizz air ungverskt flugfélag og stærsta lággjaldaflugvélagið í Mið- og Austur-Evrópu