Skráning vörumerkisins World Class hér á landi skv. alþjóðlegri skráningu hefur verið felld úr gildi, samkvæmt úrskurði Hugverkastofunnar.

Á málið rætur sínar að rekja til tilkynningar sem Hugverkastofunni barst frá Alþjóðahugverkastofnuninni um að sænska félagið World Class International Brand Sverige AB, eigandi alþjóðlegrar skráningar á World Class vörumerkinu, færi fram á að skráningin gilti hér á landi.

Andmæli bárust frá Sigurjónsson & Thor, sem sérhæfa sig í hugverkarétti, fyrir hönd Lauga ehf., sem á og rekur fjölda World Class líkamsræktarstöðva hér á landi.

Byggðust andmælin á ruglingshættu við merki World Class líkamsræktarstöðvanna og taldi Laugar ehf. sig hafa öðlast vörumerkjarétt á grundvelli áratuga notkunar. Engar athugasemdir bárust frá eiganda merkisins, það er sænska félaginu.

Úrskurðaði Hugverkastofan á þann veg að þrátt fyrir að merki sænska félagsins og íslensku líkamsræktarstöðvanna samanstæðu af lýsandi orðhluta, yrði ekki framhjá því litið að stílfærsla meginþátta merkjanna væri nákvæmlega eins.

Þ.a.l. sé ruglingshætta til staðar milli merkjanna, með vísan til 14. greinar vörumerkjalaga. Andmæli gegn skráningu World Class vörumerkis sænska félagsins voru því tekin til greina.

Fjallað er um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð , aðrir geta skráð sig í áskrift hér .