WOW air mun ekki fljúga til Stokkhólms, Edinborgar og San Francisco yfir vetrarmánuðina og mun félagið aflýsa flugum frá 5. nóvember til byrjun apríl á næsta ári, samkvæmt tilkynningu frá félaginu.

Ákvörðunin er sögð hafa verið tekin með það að leiðarljósi að ná fram aukinni hagræðingu í rekstri félagsins. Eins og þegar hafi komið fram verði seinkun á afhendingu á tveimur glænýjum Airbus A330neo vélum sem átt hafi að koma í nóvember, en komi ekki fyrr en í lok febrúar. Fyrir vikið neyðist félagið til þess að gera breytingar á leiðarkerfinu í vetur.

Síðustu flug til Stokkhólms, Edinborgar og San Francisco verða 5. nóvember. Haft verður samband við alla farþega sem eiga í hlut, þeim boðin endurgreiðsla eða að gera breytingar á ferðahögun sinni án þess að greiða breytingargjald.

Flug mun svo hefjast aftur til Stokkhólms, Edinborgar og San Francisco í byrjun apríl 2019.

WOW air flýgur til 38 áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku og í desember hefst áætlunarflug til Indlands 6. desember. Nýlega bættist Orlando við leiðarkerfi WOW air en flug þangað hefst 18. desember.