Að jafnaði voru farnar 32 áætlunarferðr á dag frá Keflavíkurflugvelli í aprílmánuði og fjölgaði þeim um 14% frá sama tíma á síðasta ári. Túristi greinir frá þessu.

Þar kemur fram að níu flugfélög hafi boðið upp á regluleg flug frá Keflavíkurflugvelli í apríl. Icelandair bauð upp á langflestar ferðir og var með 65% hlutdeild. Wow air var í öðru sæti með 14,6% hlutdeild og fór þar með fram úr Easyjet, sem haldið hefur því sæti fyrstu mánuði ársins. Munar þar miklu um ferðir Wow air til Bandaríkjanna.

Samanlagt stóðu íslensku flugfélögin Icelandair og Wow air fyrir um átta af hverjum tíu áætlunarferðum til og frá Keflavík í síðasta mánuði.