Samkvæmt stundvísisútreikningum vefsíðunnar turisti.is er Wow air stundvísasta félagið á Keflavíkurflugvelli síðastliðna tvo mánuði eða allt frá því félagið tók yfir Iceland Express.

Á vefsíðunni kemur fram að rúmlega átta af hverjum tíu farþegaþotum fóru í loftið á réttum tíma á fyrri hluta janúar. Þær skiluðu sér hinsvegar ekki eins oft heim á auglýstum tíma.

Flugvél sem seinkar um korter eða minna telst vera á réttum tíma í fluggeiranum. Icelandair fór 448 ferðir í fyrrihluta janúarmánaðar og Wow air 69 ferðir. Þegar tekið hefur verið tillit til þess þá seinkaði þessum 517 ferðum Icelandair og WOW að jafnaði um fimm mínútur samkvæmt útreikningum Túrista.

Sjá nánar á túristi.is