Wow air tekur á morgun í notkun nýja bókunarvél. Þar verður meðal annars boðið upp á viðskiptafarrými með stærri og breiðari sætum ásamt meiri fríðindum. Einnig verður þeim sem panta sér sæti í viðskiptafarrými veittur forgangur þegar gengið er um borð í vélar félagsins. Sá möguleiki verður í boði frá og með 1. mars næstkomandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Wow air.

Þrjár mismunandi leiðir

Í nýju bókunarkerfi verður hægt að velja um þrjár mismunandi bókunarleiðir; 1) WOW Basic – innifalið í verði er flug og lítil taska. 2) WOW Plus – innifalið í verði er flug, lítil taska/veski, handfarangur 12 kg , innritaður farangur 20 kg og forfallavernd. 3) WOW Biz – innifalið í verði er flug, lítil taska/veski, handfarangur 12 kg, innritaður farangur 20 kg, sætaval (stærsta sætið sem er í boði hverju sinni), forgangur um borð og máltíð um borð.

„Í WOW Biz leiðinni verður í Airbus 330 vélunum mögulegt að bóka sérstaklega breiðari og stærri sæti sem munu kallast Big Seat. Sætin eru útbúin með þægindi farþegans í fyrirrúmi og bjóða upp á enn meira sætabil og fótaskemil. Þetta er í fyrsta sinn í sögu WOW air sem slík sæti eru í boði. Sætabil nýju sætanna verður 37 tommur en til samanburðar eru hefðbundin flugsæti með sætisbil upp á 30 tommur,“ segir í tilkynningunni frá Wow.

Snarlækka hefðbundin viðskiptafargjöld

„Við höfum unnið hörðum höndum að því að lækka verð á flugi til og frá Íslandi sem og yfir Atlantshafið og þar með gert sem flestum kleift að ferðast.  Núna ætlum við einnig að snarlækka hefðbundin viðskiptafargjöld með því að bjóða mikið af sömu þjónustu svo sem stærri sæti, töskuheimildir og máltíðir fyrir mun hagstæðari verð en áður hefur þekkst.  Viðskiptafarþegar okkar hafa stöðugt verið að aukast og erum við hér með að mæta auknum kröfum þeirra,“ er haft eftir Skúla Mogensen forstjóra og stofnanda Wow air í tilkynningunni.