Í flugáætlun Wow air er gert ráð fyrir daglegu morgunflugi til Kaupmannahafnar frá Keflavík fyrstu þrjá mánuði næsta árs, en í bókunarvélinni á heimasíðu flugfélagsins hefur ferðunum hins vegar fækkað niður í allt að þrjár á viku. Túristi greinir frá þessu.

Þar kemur fram að í febrúar næstkomandi muni Wow air bjóða upp á sextán ferðir til Kaupmannahafnar, en þær voru 24 í febrúar á þessu ári. Það jafngildi um þriðjungs samdrætti í flugferðum. Túristi segir engar skýringar fást hjá Wow air á þessum breytingum.