Wow air ætlar að draga úr framboði sínu á flugi til Kaupmannahafnar og bjóða upp á morgunflug alla daga vikunnar í stað tíu ferða í viku. Þá mun Wow air sömuleiðis fljúga til Barcelona fram í október og til Alicante fram í enda nóvember. Vetrarflugi til Parísar verður haldið áfram og ferðum fjölgað um eina.

Þetta er breyting frá því sem áður var þegar flug Wow air til Spánar lagðist af á haustin.

Fram kemur í viðtali netmiðilsins Túrista við Svanhvíti Friðriksdóttur, upplýsingafulltrúa Wow air, að félagið verði áfram með þrjár vélar á sínum snærum yfir vetrarmánuðina.