Vél undir merkjum Wow air flug í sína fyrstu ferð frá Akureyri. Nemendur frá Menntaskólanum á Akureyri voru um borð en þeir voru á leið til Alicante í útskriftarferð.

Í tilkynningu frá Wow air segir að Í vetur verða fleiri sérferðir í boði fyrir norðanmenn og hafi nokkur fyrirtæki nú þegar pantað slík flug fyrir árshátíðir og aðrar hópaferðir.

Fyrirspurnum um flug frá Akureyri hefur farið fjölgandi en með beinu flugi styttist ferðatíminn til muna. Það er þægilegt að geta keyrt út Drottningarbrautina og vera komin beint til Evrópu stuttu síðan án viðkomu í Keflavík.  Það er ánægjulegt að geta gert íbúum Norðurlands kleift að komast nánast beina leið til áfangastaða WOW air í Evrópu.