WOW air mun hefja áætlunarflug til Tel Aviv í Ísrael þann 12. september. Sala flugsæta hefst á morgun en mikill áhugi er fyrir þessari nýju flugleið, bæði frá Ísrael, Bandaríkjunum og Kanada en WOW air flýgur til tíu áfangastaða í Norður Ameríku. Flogið verður í glænýrri Airbus A321neo flugvél fjórum sinnum í viku, á þriðjudögum, miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum en þess má geta að þetta er fyrsta vél sinnar tegundar sem flogið er í Evrópu.

„Aldrei fyrr hefur verið boðið upp á beint áætlunarflug til Ísrael frá Íslandi og það er gaman að geta átt þátt í því að marka tímamót í íslenskri flugsögu. Ísrael er land mikillar menningar og það fá farþegar okkar að upplifa á frábærum verðum, í glænýjum flugvélum,“ segir Skúli Mogensen forstjóri og eigandi WOW air í fréttatilkynningu um málið.

Tel Aviv er næst stærsta borg Ísrael og státar af fögrum ströndum og iðandi mannlífi. Þaðan er hægt að fara í dagsferðir á merka staði á borð við Dauðahafið, Jerúsalem og Bethlehem. Loftslagið í Ísrael er hlýtt og milt en meðalhiti þar allt árið um kring er um 20 gráður. Ágúst mánuðurinn er almennt sá hlýjasti þar sem meðalhitinn getur farið upp í 30 gráður.

„Við bjóðum WOW air velkomið til Ísrael en við höfum lagt mikla áherslu á að fjölga flugleiðum til Ísrael. Ég er viss um að þessi nýja leið muni leiða til aukningar á ferðamönnum til Ísrael frá Íslandi, Bandaríkjunum og Kanada sem er í takt við þá þróun sem við höfum séð síðastliðna mánuði,“ segir Yariv Levin ferðamálaráðherra Ísraels.

Árið 2016, þá flugu rúmlega 2.8 milljón farþegar á milli Ísrael og Norður Ameríku. Með því að tengja Tel Aviv við leiðarkerfi WOW air til Norður Ameríku þá mun staða Keflarvíkurflugvallar sem tengistöð fyrir farþega sem ferðast á milli Evrópu, Asíu og Norður Ameríku styrkjast.