WOW air flutti 80 þúsund farþega til og frá landinu í apríl eða um 102% fleiri farþega en í apríl árið 2015.

Sætanýting flugfélagsins jóks á milli ár og var í apríl 87% en svar á sama tímabili fyrir ári um 75%. Sætanýting WOW air jókst milli ára þrátt fyrir 86% aukningu á sætaframboði í apríl. Framboðnum sætiskílómetrum fjölgaði um 93% í apríl frá því á sama tíma í fyrra.

Það sem af er árinu hefur WOW air flutt um 273 þúsund farþega en það er 114% aukning farþega á sama tímabili frá árinu áður. Fjöldi ferðamanna hefur aukist um 35% það sem af er árinu, þar af er 71% aukning í fjölda ferðamanna frá Bandaríkjunum.

WOW air stefnir að því að auka sætaframboð sitt um 127% á árinu í 1,9 milljón sæta en á síðasta ári var sætaframboð félagsins 837 þúsund sæti.