Flugfélagið WOW air mun frá og með 27. október hætta ferðum til borgarinnar Cork á Írlandi. Þetta kemur fram í frétt Irish Examiner . Einungis tveir mánuðir eru síðan WOW air flaug sitt fyrsta flug til Cork sem er önnur stærsta borg Írlands. Stóð til að flogið yrði fjórum sinnum í viku, allan ársins hring.

Er lítil eftirspurn eftir ferðum milli Keflavíkur og Cork sögð ástæða ákvörðunar stjórnenda WOW air. Ekki verður flogið til borgarinar í vetur en tekin verður ákvörðun næsta haust um hvort flogið verði til Cork næsta sumar, þegar sumaráætlun WOW air liggur fyrir.