WOW air tók í dag formlega við flugrekstrarleyfi frá Samgöngustofu en um 30 ár eru liðin síðan flugrekstrarleyfi var veitt til handa félagi sem stundar áætlunarflug til og frá Íslandi. Flugfélagið WOW air fór í jómfrúarflug sitt 31. maí 2012 og ár er síðan félagið tók yfir flugrekstur Iceland Express.

Stjórnendur WOW air líta svo á að flugrekstrarleyfi sé liður í því að styrkja og byggja upp rekstur félagsins. Það sé lykilatriði fyrir áframhaldandi vöxt WOW air að fljúga undir eigin flaggi. Það gefi félaginu mun meiri stjórn á öllum rekstri sem sé þá ekki háður öðrum flugrekstraraðila.

„Samgöngustofa lýsir ánægju sinni með að nýtt íslenskt flugfélag skuli nú hafa fengið heimild til flugreksturs. Því fylgja ákveðnar skyldur og ábyrgð en einnig virðisauki fyrir íslenskt samfélag í formi ýmissa starfa tengdum flugrekstrinum. Samgöngustofa óskar nýjum rekstraraðilum góðs gengis í starfseminni og vonast eftir góðu og gifturíku samstarfi“ segir Hermann Guðjónsson forstjóri Samgöngustofu í tilkynningu.

WOW air er nú orðið flugfélag og því fylgir bæði mun meiri ábyrgð en jafnframt tækifæri. Starfsemi WOW air hefur tvöfaldast síðan síðastliðið sumar og frá með næsta mánuði mun fast- og lausráðið starfsfólk nema um 170 manns. Félagið auglýsti eftir flugmönnum fyrir hálfum mánuði og bárust um 270 umsóknir. WOW air hefur nú þegar ráðið 9 flugmenn og fleiri munu bætast í hópinn á næstu mánuðum. Nú munu flugmenn félagsins verða starfsmenn WOW air með komu flugrekstrarleyfisins.

WOW air mun næsta sumar reka fimm vélar, en hafði tvær vélar fyrsta sumarið. Um er að ræða nýjustu þoturnar sem notaðar eru í áætlunarflugi til og frá Íslandi af íslensku flugfélagi. Nýju Airbus A320 vélarnar eru mun sparneytnari en eldri vélar og jafnframt menga þær umtalsvert minna.

Fyrsta flugið undir merkjum WOW air, TF-WOW mun fara til Kaupmannahafnar kl. 7 í fyrramálið, miðvikudaginn 30. október. „Afhending flugreksrarleyfisins eru tímamót í flugsögu Íslands. Ég er stoltur af þessum áfanga sem er hornsteinn í áframhaldandi vexti flugfélagsins. En ég er fyrst og fremst þakklátur öllu því kraftmikla fólki sem starfar hjá WOW air og hefur gert WOW að veruleika. Einnig er ég þakklátur fyrir þær frábæru móttökur sem við höfum fengið frá íslensku þjóðinni frá fyrsta degi“ segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air.