Í septembermánuði flutti Wow air 192.860 farþega til og frá landinu, sem er um 165% fleiri farþegar en í september fyrir ári síðan.

Hlutdeild flugfélagsins í heildarfarþegafjöldanum um Keflavíkurflugvöll var 27% sem er 12 prósentustiga hækkun milli ára.

Sætanýtingin var 88% í mánuðinum en 87% á sama tíma í fyrra, svo hún helst svipuð þrátt fyrir að sætaframboðið hefur aukist um 169% frá því fyrir ári.

Í nóvember mun flugfélagið bæta við daglegum flugferðum til New York en í sumar hóf félagið áætlunarflug til San Francisco og Los Angeles. Næsta vor hefst svo heilsársflug til Miami.