WOW air og Flugfreyjufélag Íslands undirrituðu i í dag kjarasamning sín á milli.  Þetta heildarsamningur sem tekur á öllu sem við starfinu kemur og  samningurinn gildir til 31. janúar 2014.

Haft er eftir Sigrúnu Jónsdóttur, formanni Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ), að félagið sé mjög ánægt með að Wow air hafi að fyrra bragði leitað eftir því að gera kjarasamninga. „Svo skemmtilega vildi til að á sama tíma vorum við að póstsenda bréf með beiðni um fund  svo aðilar voru frá byrjun samstíga í því að ganga frá samningum,“ er haft eftir henni í tilkynningu frá Wow air.

Fram kemur í tilkynningunni að WOW air hafi ráðið til starfa 45 flugliða sem munu hefja störf 1. júní næstkomandi þegar félagið hefur áætlunarflug til London, Kaupmannahafnar, Berlín, Stuttgart og 9 annarra áfangastaða.

Þá er haft eftir Baldri Óskari Baldurssyni, forstjóra WOW air, að flugfélagið sé mjög ánægt með samninginn. „Það var okkar stefna frá upphafi að ganga frá samningi við FFÍ.  Það er markmið okkar að WOW air sé og verði spennandi og eftirsóttur vinnustaður og þessi kjarasamningur er hluti af því markmiði,“ segir hann.