Samkeppniseftirlitið úrskurðaði þann 1. nóvember á síðasta ári að Isavia, sem er opinbert hlutafélag í eigu ríkisins, beri að úthluta brottfarartímum á Keflavíkurflugvelli til WOW air. WOW air segir að þessir brottfarartímar séu nauðsynlegir til þess að flugfélagið geti hafið flug til Norður-Ameríku í samkeppni við Icelandair sem er í dag með einokunarstöðu á flugi til og frá Norður-Ameríku.

WOW air hafði óskað eftir fjórum brottfarartímum, tveimur að morgni og tveimur seinnipart dags fyrir tvo áfangastaði í Norður-Ameríku.   Til samanburðar mun Icelandair fljúga til 11 áfangastaða í Norður-Ameríku frá og með næsta vori og þarf því yfir 150 komu- og brottfarartíma sem eru langflestir á svipuðum tíma og WOW air óskaði eftir. Hagstæðasta rekstarmódelið er að flytja farþega til Evrópu að morgni og seinni part dags til Bandaríkjanna. Þess vegna er það mikilvægt fyrir WOW air að fá ofangreinda komu- og brottfaratíma til þess að geta hafið flug til Norður-Ameríku.

WOW air segir að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að veita WOW air tiltekna brottfarartíma hafi verið ítarleg og byggð á vinnu sem staðið hafði yfir síðan 14. mars 2013. Isavia og Icelandair kærðu hins vegar þessa ákvörðun til Áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem tók þá ákvörðun fyrir helgi að fresta þessari úthlutun þar til að endanlegur úrskurður nefndarinnar lægi fyrir í málinu. Ekki liggur hins vegar fyrir hvenær sá úrskurður mun liggja fyrir og er því allt fyrirhugað flug WOW air til Norður–Ameríku í uppnámi.

„Það er skandall að Isavia skuli kæra úrskurð Samkeppniseftirlitsins og þar með koma í veg fyrir eðlilega samkeppni og heilbrigðan vöxt ferðaþjónustunnar“ segir Skúli Mogensen stofnandi og forstjóri WOW air. Hann segir að með þessu sé ríkisfyrirtækið Isavia að vernda hagsmuni og einokun Icelandair