Wow air hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar um það hvort að WOW air sé flugfélag, flugrekstraraðili, ferðaþjónustufélag eða skilgreint á annan hátt.

Í yfirlýsingunni frá félaginu kemur fram að Wow air sé flugfélag og Wow travel sé ferðaskrifstofa sem hafi það að leiðarljósi að veita viðskiptavinum heildarlausn þegar það kemur að ferðum til og frá Íslandi.

„Flugfélagið og ferðaskrifstofan leggja allt kapp á að bjóða alltaf ódýrustu fargjöldin til og frá Íslandi ásamt góðu úrvali af hótelum, bílaleigubílum, afþreyingu, pakkaferðum, skíðaferðum, golfferðum og fleiru sem tengist ferðaiðnaði,“ segir í yfirlýsingunni.

„Til að auka enn við þjónustu gagnvart farþegum sínum tók Wow air nýlega yfir allt áætlunarflug Iceland Express og mun Wow air standa við í einu og öllu við allar skuldbindingar gagnvart farþegum Iceland Express.“

Skúli Mogensen, eigandi og forstjóri Wow air, segir í yfirlýsingunni að í raun sé það liðin tíð fyrir flugfélög að selja eingöngu flugsæti og því sé tímaskekkja að tala eingöngu um flugrekstur. Að því leytinu sé hann sammála Flugmálastjórn í þeim efnum.

„Wow air er vissulega flugfélag sem hefur það að markmiði að veita okkar viðskiptavinum heildarferðaþjónustu hvort sem þeir sækist eftir flugi, hóteli, pakkaferðum eða öðru og alltaf á lægsta mögulega verðinu,“ segir Skúli.

„Við hlökkum til að halda áfram uppbyggingu Wow air í nánu og góðu samstarfi við fjöldann allan af ferðaþjónustuaðilum hérlendis og erlendis.“