Umhverfisstofnun hefur lagt stjórnvaldssekt á þrotabú flugfélagsins WOW Air að upphæð 3.798.631.250 króna vegna vanrækslu flugrekanda á að standa skil á losunarheimildum fyrir árið 2018. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu en um er að ræða langhæstu sekt sem Umhverfisstofnun hefur lagt á.

„Ísland er aðili að viðskiptakerfi Evrópusambandsins um losunarheimildir (ETS) sem miðar að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá iðnaði og flugi. Meginreglan er að sá borgi sem mengar. Þeir aðilar sem losa meira en áætlað var þurfa að kaupa sér fleiri losunarheimildir. Fjárhæð stjórnvaldssektarinnar er lögbundin og samsvarar 100 evrum í íslenskum krónum vegna hverrar losunarheimildar, en eitt tonn af CO2 jafngildir einni losunarheimild. Samkvæmt vottaðri losunarskýrslu flugrekandans WOW Air var heildarlosun ársins 2018 278.125 tonn CO2," segir í tilkynningunni.

„Til viðbótar við sektina þarf einnig að standa skil eða kaupa nýjar losunarheimildir sem samsvara losun frá rekstri flugrekanda á árinu 2018."