Wow Air er sjöunda besta lággjaldaflugfélag í Evrópu samkvæmt niðurstöðum árlegrar könnunar sem breska ráðgjafarfyrirtækið Skytrax stóð fyrir og byggist á mati flugfarþega um allan heim. Besta lággjaldaflugfélag í Evrópu er norska flugfélagið Norwegian.

Verðlaunin, sem nefnast World Airline Awards , voru veitt í dag. Flugfélagið Cathay Pacific Airways frá Hong Kong var valið besta flugfélag í heimi. Í öðru sæti var Quatar Airways og í því þriðja var Singapore Airlines. Veitt voru verðlaun í nokkrum flokkum, m.a. í flokki lággjaldaflugfélaga, í flokki bestu flugvélasætanna og besta starfsfólksins.

Í flokki bestu flugfélaga í norður Evrópu hafnaði Icelandair í fjórða sæti og Wow Air í því sjötta. Finnska flugfélagið Finnair var valið besta flugfélag í norður Evrópu.