Forsvarsmenn Wow air eiga í viðræðum um afgreiðslutíma á Long Island MacArthur flugvelli í New York fylki í Bandaríkjunum, en þetta kemur fram á fréttavefnum Long Island Business News .

Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi Wow air, tjáir sig um málið í samtali við Túrista og staðfestir að Long Island MacArthur sé einn af mörgum flugvöllum sem félagið sé að skoða. „Nýir áfangastaðir fyrir árið 2016 verða tilkynntir síðar,“ segir hún.

Á vef Túrista kemur fram að flugvöllurinn sé í rúmlega 80 kílómetra fjarlægð frá Manhattan og tilheyri bænum Islip. Á síðasta ári fóru um 1,3 milljónir farþega um flugvöllinn. Um einn og hálfan tíma tekur að komast frá flugvellinum til New York borgar.