Wow air lagði í morgun fram formlega inn umsókn fyrir flugrekstrarleyfi til handa félaginu ásamt umbeðnum handbókum. Pétur Maack, flugmálastjóri, og næstráðendur tóku á móti gögnunum hjá Flugmálastjórn Íslands.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Wow air en heildarblaðsíðufjöldi umbeðinna handbóka eru rúmlega 7.500 blaðsíður.

„Umsókn um flugrekstrarleyfi er liður í því að styrkja og treysta rekstur Wow air sem hyggst í framtíðinni reka sína eigin flugvélar og fljúga til Norður Ameríku,“ segir í tilkynningunni.

„Til þess þarf félagið að hafa sitt eigið flugrekstrarleyfi og með tilkomu leyfisins getur Wow air hafið daglegt flug til Norður Ameríku frá vori 2014. Meira en 20 ár eru liðin síðan sótt var síðast um flugrekstrarleyfi til handa félagi sem stundar áætlunarflug til og frá Íslandi.“

Þá kemur fram í tilkynningunni að starfsemi Wow air hafi tvöfaldast á milli ára og frá og með næsta mánuði muni fast- og lausaráðið starfsfólk telja um 150 manns. Nú þegar hefur verið ráðið í allar helstu stöður tengdar þeim breytingum sem verða í kjölfar þess að Wow air verður með sitt eigið flugrekstrarleyfi.

Skúli Mogensen, forstjóri Wow air, skilar inn gögnum um umsókn félagsins um íslenskt flugrekstrarleyfi. (Mynd: Sigurjón Ragnar)
Skúli Mogensen, forstjóri Wow air, skilar inn gögnum um umsókn félagsins um íslenskt flugrekstrarleyfi. (Mynd: Sigurjón Ragnar)