WOW air er stundvísasta flugfélagið sem flýgur reglulega til og frá Íslandi. Breska lággjaldaflugfélagið easyJet var óstundvísast. Þetta kemur fram á vefsíðu Dohop .

Þrjú flugfélög voru með 50 eða fleiri skráð flug frá landinu í september, en það voru Icelandair, WOW air og easyJet. Af þessum flugfélögum var WOW air stundvísast og voru 87% brottfara félagsins á réttum tíma en komuflug í 88% tilvika. Tafir hjá flugfélaginu voru jafnframt styttri en tafir hjá Icelandair og easyJet.

Næststundvísast var Icelandair með 85% brottfara á réttum tíma og 86% komuflug. Flugfélagið easyJet er hins vegar óstundvísast með 63% brottfara á réttum tíma og 77% komufluga. Einnig voru tafir hjá flugfélaginu lengri en hjá íslensku flugfélögunum.