Wow air hefur fengið afhenta glænýja flugvél beint frá verksmiðjum Airbus. Er þetta fyrsta Airbus A320neo flugvél félagsins sem leigð er frá bandarísku flugvélaleigunni Air Lease Corporation. Þetta er þrettánda vél Wow air í ört stækkandi flota flugfélagsins og verður vélin skráð undir heitinu TF-NEO. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Wow air.

„Umrædd vél var valin vegna framúrskarandi gæða, lágs rekstrarkostnaðar og eldsneytissparnaðar, sem getur numið allt að 15 til 20% og er því mjög umhverfisvæn,“ segir í tilkynningunni.

„Við erum stolt af því að geta boðið upp á einn yngsta og háþróaðasta flotann þó víða væri leitað. Það gerir farþegum okkar kleift að ferðast vítt og breitt um heiminn á umhverfisvænan hátt á afar lágu verði,“ segir Skúli Mogensen stofnandi og forstjóri Wow air.

„Það er okkur sönn ánægja að afhenda Wow air þessa vél sem er fremst í sinni röð hvað varðar rekstrarkostnað og tækninýjungar. Vélin mun sóma sér vel innan flota Wow air og veita farþegum frábæra upplifun á ferðalögum sínum,“ segir Fabrice Brégier, forstjóri Airbus.

Wow air tilkynnti nýverið um kaup á sjö nýjum Airbus flugvélum en í lok árs 2018 verða flugvélar WOW air orðnar 24 talsins sem notaðar verða í áframhaldandi stækkun félagsins í Norður-Ameríku og víðar.