Skrifstofa endurreista flugfélagsins Wow air á Ítalíu vinnur nú að því að koma á fót frakt- og farþegaflutningum frá Ítalíu, að því er kemur fram í Facebook-tilkynningu frá Wow air .
Samkvæmt tilkynningunni styttist því í að félagið hefji flug til og frá Róm og Sikiley.
Wow air réði nýlega, líkt og Viðskiptablaðið greindi frá á dögunum, Giuseppe Cataldo yfir starfsemi félagsins á Ítalíu .
Óhætt er að segja að tímasetning fyrir flugfélag til að hefja starfsemi á Ítalíu sé í augnablikinu slæm. Þó nokkur tilfelli af kórónuveirunni hafa greinst í norðurhluta landsins og hafa margir ferðalangar afbókað fyrirhugaðar ferðir sínar til landsins sökum þess.