Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair sagði eina af skýringunum á fækkunum í bókunum hjá félaginu vera breytt neyslumynstur yngri kynslóða og í þau orð vísar flugfélagið Wow air með tísti sínu.

„Það koma kynslóðir sem breyta neyslumynstrinu. Það er væntanlega ein að koma þannig núna. Ég man ekki hvað hún er kölluð…. me, me, me,“ sagði Björgólfur .

„Ég held hún vilji bara fá þjónustu og eiga möguleika á að kaupa þjónustu. Við verðum að breyta okkur í þessa áttina.“