Wow air hyggst hætta áætlunarflugi til borganna Cincinnati og Cleveland, sem báðar eru í Ohio-fylki, eftir aðeins fimm mánuði. Ástæðan er sögð vera ónóg eftirspurn. Frá þessu er sagt á Vísi , og þar vísað í fréttir bandarískra miðla.

Haft er eftir upplýsingafulltrúa félagsins að ekki standi til að hætta flugi til Detroit, sem hófst í upphafi árs, og engin ákvörðun hafi verið tekin varðandi framtíð flugs til JFK í New York-fylki og Dallas í Texas.

Sagt var frá því í gær að flug félagsins til St. Louis hefði verið lagt af, og enn sem komið er væri ekki hægt að bóka flug til borganna tveggja í Ohio næsta sumar.